Jæja gott fólk.
Jói og Danni heilsa ykkur í 30 stiga hita í Jórdaníu. Þegar ég skildi við ykkur seinast þá var ég bara búinn að tala um fyrsta leikinn ekki satt. En eins og svo oft áður þá er það Jói sem er að skrifa og Danni drulluhress á kantinum. Ég ætla byrja á að tala um næstu tvo leiki sem við erum búnir að spila. Eftir fyrsta leikinn þá var næst leikur á móti meisturunum frá Írak. Við vorum búnir að fara á eina æfingu eftir fyrsta leikinn og komast aðeins meira inn í spilið og kerfin og svona. Til að gera langa sögu stutta þá unnum við þann leik nokkuð sannfærandi. Ég setti 6 hnullunga og Danni átti flottan leik og setti 10 kvikindi (úr 12 skotum, innskot frá Danna). Hann er búinn að eigna sér punktinn (vítapunktinn innskot frá ritara) og klikkar varla þar. Næsti leikur var úrslitaleikur um hver myndi vinna riðilinn en mótherjar okkar komu frá Dubai og með því liði leikur ekki ómerkilegri maður en Hussain Zaky , sem lék með Ciudad Real á sínum tíma, algjör markamaskína. Við unnum þann leik nokkuð sannfærandi með 6 að mig minnir og tvíeykið frá íslandi skiluðu fínu framlagi. Joe Johnson setti 5 og Danni 7 allt á fyrstu 20 mínutunum eða eitthvað álíka og var mikið tekinn út eftir það. Hann klúðraði þó einu víti sem er ekki ásættanlegt. Við semsagt unnum riðilinn nokkuð sannfærandi. Við fengum síðan 5 daga pásu og er dagur 3 í þeirri pásu nú að líða. Síðan tekur við annar fjagra liða riðill og eftir hann eru undanúrslit.
Ég er búinn að vera duglegur að smella á myndavélina og ætla reyna að setja nokkrar á facebook innan skamms.
Daníel er kominn í fjölmiðlabann eftir að hafa talað við Henry á Vísi því það var nú meira bullið sem kom út úr honum, bara svo það sé á hreinu þá þori ég að fara út úr hótelinu. En hótelið sem við erum á er fjagra stjörnu hótel, hér er lyftingarsalur, innisundlaug, jacuzzi, sauna og þvílíkt flottur matur þó að ég og daníel vitum ekki hvað helmingurinn er.
Við hittum síðan ekki ómerkilegri mann en Tite Kalantatse í höllinni um daginn og er hann hér í svipuðum erindargjörðum og ég og Daníel, en hann er að hjálpa liði frá Líbanon að gera gott mót, við höfum samt ekki séð hann spila.
Ég og daníel vorum að koma af æfingu og ég verð að nefna að við tókum þátt í einhverjum skrítnasta fótbolta sem sögur fara af. Aðstoðarþjálfarinn var dómari og flautaði á allt og ég og daníel horfðum bara á hvorn annan og vissum ekkert hverjar reglurnar voru, stundum var hann útaf, einn fékk dæmda aukaspyrnu á sig fyrir að sparka of hátt og ég veit ekki hvað og hvað.
Ég og Daníel tókum síðan smá rölt í gær um hverfið og hvað haldiði að við höfum fundið..... jú ekki ómerkilegri stað en Kenny (KFC) þvílík himnasending. Eftir hann fórum við á kaffihús og var það merkileg upplifun, staðurinn var troðfullur bara karlmenn og voru svona 50 vatnspípur í umferð, en fyrir ykkur sem vitið ekki hvað það er þá er það svona stórt apparat með slöngum útfrá og það er svona ávaxtatóbak sett í og það mallar alveg í þessu, hér verður ekki nefnt hvort við fengum okkur svoleiðis eða ekki.
Við duttum síðan í Moll um daginn og djöfulsins stærð var á því og flottar búðir. En hér er allt opið til 10 eða 11 alltaf. En í dag er föstudagur og er það einhver helgidagur múslima og því er mest allt lokað, en ég og danni ætlum að gera ráð fyrir því að kenny sé opið á eftir.
En ég nenni ómögulega að skrifa meira en hef frá svo mörgu að segja en það kemur bara næst.
Bless bless
p.s þjálfarinn okkar minnir mig svo skuggalega á Ference Buday í töktum að það er rugl.
p.s 2 Það er einn með okkur í liði sem lítur nákvæmlega eins út og körfuboltamaðurinn Michael Finley.
Abonnieren
Kommentare zum Post (Atom)
Vil þakka innilega fyrir að hafa leyft okkur lesendum að fylgjast svona vel með dvöl ykkar í Jórdaníu... Þvílíkt ævintýri!
AntwortenLöschenEn það er gott að eiga þetta á prenti.
Er ekki annars heimkoma í dag?